Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Hlutverk umsjónarkennara

Í lögum um grunnskóla (nr. 13, 2008) er kveðið á um að hlutverk umsjónarkennara sé að fylgjast náið með námi nemenda sinni og þroska, leiðbeina þeim í námi og starfi, aðstoða og ráðleggja þeim um persónuleg mál og stuðla að því að efla samstarf skóla og heimila.

Í Brekkuskóla eru m.a. eftirfarandi verkefni falin umsjónarkennurum:

  • Umsjónarkennarar gegna lykilhlutverki í nánu samstarfi við nemendur og heimili þeirra.  Lögð er áhersla á virk samskipti við heimilin og samstarf við þau um markmiðssetningu fyrir hvern og einn nemanda.  Þá standa umsjónarkennarar fyrir öflugu starfi innan hvers bekkjar með það að markmiði að skapa samkennd, öryggi og vellíðan í nemendahópnum og efla lífsleikni nemenda.
    Að fylgjast með líðan, ástundun og námi nemenda sinna og grípa til aðgerða eftir því sem Uppbyggingarstefna og Olweusaráætlun skólans segir til um.
  • Að skapa góðan bekkjaranda og hjálpa nemendum að móta vinnureglur.  Setja bekkjarsammála samkvæmt uppbyggingarstefnu Brekkuskóla með umsjónarbekknum í upphafi hvers skólaárs.
  • Að kynna og ræða með nemendum umgengnisreglur í upphafi vetrar og eftir því sem þurfa þykir.
  • Að halda reglulega bekkjafundi samkvæmt uppbyggingarstefnu Brekkuskóla þar sem rædd eru samskipti í bekknum, líðan o.s.frv.
  • Að ræða við nemendur um umgengni í stofum, sal, á göngum og lóð skólans. Ennfremur um framkomu í ferðalögum og öðrum uppákomum á vegum skólans.
  • Að vera í stöðugum og góðum samskiptum við foreldra.

Vegvísir: "föstudagspóstur" um vikuna sem var að líða og hvað er framundan, viðtöl að hausti við foreldra og nemendur, nemendaviðtöl og leiðsagnarmat á miðri haust- og vorönn, símtal eða boðun í viðtal með foreldrum á miðri haust- og vorönn, viðtal í janúarbyrjun og leiðsagnarmat, morgunmóttökur og sýnismöppudagur að vori.

  • Að leita ávallt úrræða til handa nemendum ef á þarf að halda.
  • Að leiðbeina nemendum, í samvinnu við foreldra, við að setja sér markmið varðandi námið og skólagönguna.  
  • Skrá í Mentor allar þær upplýsingar sem halda þarf til haga varðandi nemendur
  • Að skipuleggja viðtöl við foreldra og hafa þá tiltækar upplýsingar um nám nemenda í öllum námsgreinum.
  • Skipuleggja kynningarfundi að hausti og sjá um að foreldrar velji foreldrafulltrúa bekkjarins.
  • Standa fyrir foreldrafundi á haustönn til að efla foreldrahópinn.
  • Að afla upplýsinga um greiningar og sértæk mál einstakra nemenda og upplýsa aðra starfsmenn, en gæta samt trúnaðar.
  • Að taka á móti nýjum nemendum sbr. vinnureglur skólans þar um.
  • Að vera í samstarfi við aðra kennara árgangsins.
  • Að vera tengiliður milli skólastjórnar, nemenda og foreldra.

     

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn