Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Jafnréttisáætlun

Jafnréttisáætlun þessi er gerð í samræmi við ákvæði laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 og Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar 2004-2007.

 

Áætlunin nær annars vegar til jafnréttis kynjanna meðal starfsfólks og hins vegar meðal nemenda.

Starfsfólk - laus störf

Meirihluti starfsfólks skólans er konur. Við nýráðningar verður leitast við að jafna kynjahlutfallið.

Hvernig: Gerð verði samantekt á kynjahlutfalli starfsfólks hvers skóla eftir starfsheitum.

Hver: Skóladeild.

Hvenær: Í október.

Hvernig: Í starfsauglýsingum verði vitnað til jafnréttisáætlunar skólans og jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar.

Hver: Skóladeild.

Hvenær: Þegar við á.

Hvernig: Við ráðningar verði unnið í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um ráðningar m.t.t. kynjasjónarmiða.

Hver: Skólastjórar.

Hvenær: Þegar við á.

Starfsfólk - starfsþjálfun og endurmenntun

Konum og körlum sem vinna sambærileg störf í skólanum skal til jafns standa til boða starfsþjálfun og endurmenntun.

Hvernig: Við gerð símenntunaráætlana skal þess gætt að kynjunum sé ekki mismunað. Starfsfólki skal standa til boða fræðsla um jafnréttismál.

Hver: Stjórnendur skólans.

Hvenær: Í október/nóvember.

Starfsfólk - laun

Nauðsynlegt er að fylgjast með launum starfsmanna út frá kynjasjónarmiði og vinna að því að jafna laun kynjanna komi launamunur í ljós.

Hvernig: Gerð verði úttekt þar sem skoðuð verða grunnlaun, yfirvinnugreiðslur o.s.frv. eftir kyni og starfsheitum.

Hver: Jafnréttisráðgjafi Akureyrarbæjar.

Hvenær: Í nóvember.

Starfsfólk - samræming starfs og einkalífs.

Mikilvægt er að starfsfólk hafi tækifæri til þess að sinna skyldum sínum í starfi jafnt sem einkalífi og að gott jafnvægi sé þar á milli. Reynt er að koma til móts við starfsmenn um sveigjanleika í störfum þar sem kostur er.

Hvernig: Óskir starfsfólks um sveigjanleika verði metnar eftir aðstæðum.

Hver: Skólastjórnendur.

Hvenær: Þegar við á.

Starfsfólk - kynferðistleg áreitni og einelti

Gerðar hafa verið leiðbeiningar fyrir bæjarkerfið um viðbrögð við kynferðislegri áreitni og einelti á vinnustöðum. Allt starfsfólk skólans þarf að vera meðvitað um ábyrgð og færar leiðir ef upp koma tilvik sem varða kynferðislega áreitni eða einelti.

Hvernig: Leiðbeiningarnar verði kynntar öllu starfsfólki á starfsmannafundi en skulu auk þess vera aðgengilegar í starfsmannahandbók.

Hver: Stjórnendur skólans.

Hvenær: Í ágúst/september.

Þess skal gætt í öllum starfsháttum skólans og daglegri umgengni við nemendur að þeim sé ekki mismunað á grundvelli kynferðis. Leitast skal við að mæta þörfum beggja kynja í skólastarfinu.

Telji nemandi á sér brotið samkvæmt áætlun þessari og lausn finnst ekki innan skólans getur viðkomandi leitað til jafnréttisráðgjafa Akureyrarbæjar.

Endurskoðun:

Endurskoða skal jafnréttisáætlun þessa vorið 2006. Ný áætlun er í vinnslu.

 

 

 

 

 

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn