Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Leikjabók

Íþróttakennarar Brekkuskóla hafa sett saman leikjabók sem komin er í gagnið. Bókin er hugsuð sem leiðbeiningar fyrir starfsfólk skólans við störf í frjálsum tíma á skólalóð til að leiðbeina börnum við leik og koma af stað leikjum. Bundnar eru vonir við að leikjabókin verði hvatning til fjölbreyttra leikja og hreyfingar meðal nemenda skólans. Í bókinni eru 25 leikir með leiðbeiningum auk þess sem nokkrir innileikir fá að fljóta með. Fremst í bókinni er yfirlitsmynd af skólalóðinni þar sem svæðin hafa verið merkt sem ábending um heppilegan stað fyrir hvern leik. Bókin er staðsett á vegg við fatahengi starfsfólks.  Starfsmenn geta einnig nálgast bækurnar á skólasafni. Hvetjum við ykkur til að nýta ykkur þessar frábæru leiðbeiningar.

Hér má einnig nálgast leiki bæði úti og inni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn