Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Móttaka nýrra nemenda

Móttaka nemenda í 1. bekk

Vinaleikskóli Brekkuskóla er leikskólinn Hólmasól.

Samskipti skólans og móttaka 5 ára nemenda fer fram með eftirfarandi hætti:

Upplýsinga- og samráðsfundir eru haldnir nokkrum sinnum á vetri, þar hittast kennarar elstu barna leikskólans og 1. bekkjar Brekkuskóla ásamt fulltrúa skólastjórnenda.

  • Í ágúst/september er fundur til að dagsetja og undirbúa gagnkvæmar heimsóknir yfir veturinn. Einnig skoðað námsefni beggja skólastiga.
  • Í janúar er fundur til gagnkvæmra upplýsinga um námsefni skólanna. 
  • Fulltrúi stjórnenda boðartil fyrsta fundar.

 Gagnkvæmar heimsóknir

  • Í október fara nemendur 1. bekkja í heimsókn á Hólmasól.
  • Í nóvember koma nemendur Hólmasólar í heimsókn í Brekkuskóla, áhersla lögð á að skoða húsnæði og umhverfi skólans, frímínútur, skólavistun og mötuneyti.
  • Í febrúar koma nemendur Hólmasólar í aðra heimsókn í Brekkuskóla. Þá er áhersla lögð á að skoða skólastofuna, kynnast kennslustund, skipulagi bekkjarkennslunnar og kennurunum.
  • Í apríl koma nemendur Hólmasólar í þriðju heimsóknina í Brekkuskóla. Aðaláhersla er þá lögð á að kynnast íþróttahúsi, sundlaug, sturtuklefum, sérgreinastofum, bókasafni o.fl.
  • Nemendur sem þurfa sérstaka aðlögun koma í fleiri heimsóknir í fylgd leikskólakennara ef þurfa þykir.
  • Kennarar á báðum skólastigum hafi í huga að bjóða til heimsókna í tilefni af uppákomum s.s. leiksýningum.

Skilafundir

  • Eftir skráningu í grunnskóla í mars ár hvert eru nafnalistar sendir á Skóladeild. Skóladeild finnur í hvaða leikskóla börnin eru og sendir lista í viðkomandi leikskóla.
  • Boðað er til skilafunda í samráði við leikskólana þar sem upplýsingum er miðlað um nýnemana í grunnskólanum.  Gert er ráð fyrir að fundina sitji af hálfu grunnskólans deildarstjóri, sérkennari og væntanlegir kennarar en af hálfu leikskólans deildarstjóri, kennari og sérkennari.

 Vorskóli

Kynningarfundur

  • Á meðan á vorskóla stendur eru foreldrar boðaðir með bréfi til kynningarfundar í skólanum.  Húsnæðið og umhverfið er kynnt fyrir foreldrum og nemendum og skólastarfið kynnt fyrir foreldrum meðan nemendur kynnast nokkrum starfsmönnum skólans og vinna verkefni undir þeirra stjórn.               

 

Móttaka annarra nemenda en þeirra sem fara í 1. bekk

A. Nemandi sem kemur nýr  að hausti

  • Umsjónarkennari kynnir sér hvort nýir nemendur koma í bekkinn

  • Umsjónarkennari notar vinnudaga í ágúst til að hafa samband við heimili nýrra nemenda og býður þeim í stutta heimsókn í skólann.

  • Umsjónarkennari gengur um skólann með nemandanum og kynnir skólann og starfið.

  • Ef engar upplýsingar  hafa borist frá fyrri skóla skal umsjónarkennari hafa frumkvæði um að afla þeirra.

  • Þegar nýi nemandinn mætir í bekkinn sér kennari um að bjóða hann velkominn, kynna hann.

  • Kennari hvetur aðra nemendur til að aðstoða þann nýja og ræður sérstaka velunnara úr hópi bekkjarfélaga til að aðstoða nýja nemandann.

  • Kennari hringir heim eftir stuttan tíma í skóla og lætur foreldra vita hvernig gengur að aðlagast nýju umhverfi.

B. Nemandi kemur nýr inn um miðjan vetur

  • Þegar umsjónarkennari fær að vita að nýr nemandi er væntanlegur í bekkinn, hringir hann í foreldra og nemanda og býður þeim viðtal. Umsjónarkennari gengur um skólann með nemandanum og kynnir skólann og starfið.

  • Kennari, foreldrar og nemandi koma sér saman um með hvaða hætti nemandi byrjar skólastarfið í nýjum skóla.

  • Kennari hvetur aðra nemendur til að aðstoða þann nýja og ræður sérstaka velunnara úr hópi bekkjarfélaga til að aðstoða nýja nemandann.

  •  Kennari hefur samband við heimili eftir stuttan tíma í skóla og lætur vita hvernig gengur að aðlagast skólastarfinu.

  •  

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn