Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Námsbækur

Margnota námsbækur nemenda eru geymdar á skólasafni og í námsgagnageymslum á 1. og 2. hæð.

Sumar námsbækur eru skráðar á skólasafn og þangað fara nemendur í upphafi námsannar og taka út námsbókina á sitt bókasafnskort. Aðrar námsbækur sem nemendur fá til afnota og eru margnota má nálgast í bókageymslum. Þær eru merktar með númeri og nýjar bækur þarf að merkja með penna samkvæmt eftirfarandi: Númerið er þriggja tölustafa og á að gefa til kynna í hvaða árgangi námsbókin er oftast kennd s.s. námsbók í 7. bekk byrjar á tölustafnum 7. Síðan kemur númer nemandans sem hann fær úthlutað að hausti. Sá sem er efstur í stafrófinu fær númerið 701, næsti nemandi númerið 702 o.s.frv. Munið að hafa merkt aukaeintök í skólastofunni til afnota ef nemandi gleymir bók heima eða ef hún glatast. Nemandanum er þá gert að finna námsbókina. Finnist hún ekki innan tveggja vikna er nemanda gert að kaupa nýja námsbók hjá aðstoðarskólastjóra og foreldrum tilkynnt um það. (Þegar hér er komið sögu finnast bækurnar oftast)

Tilgangur merkinga.
Glatist bók eða hún finnst þá er hægt að komast að því hver ber ábyrgð á bókinni og hefur hana til afnota. Þannig má því koma henni fljótt og vel í réttar hendur. 

Þegar bækur eru innkallaðar merkir viðkomandi kennari við hjá sér að viðkomandi nemandi hafi skilað bókinni.
Glati nemandi bók ber honum að greiða nýtt eintak hjá aðstoðarskólastjóra. Umsjónarkennari gerir aðstoðarskólastjóra viðvart. Í lok skólaárs gera kennarar lista yfir þá sem ekki skila bókum og afhendir aðstoðarskólastjóra sem sendir foreldrum reikning fyrir nýrri bók.

Stefnt er að því að allar námsbækur verði skráðar á skólasafn, en á hverju ári eru skráðar inn nýir bókaflokkar. Þetta er gríðarleg vinna og taka allir starfsmenn þátt í að koma þessu á. 

Umhirða skólabóka.
Þegar bókum er skilað til kennara er mikilvægt að nemandinn yfirfari bókina, stroki út pár og þrífi hana að utan með efni sem hægt er fá hjá skólasafnkennara. Ef þetta er gert spörum við mikla vinnu sem flýtir fyrir skráningum á námsbókum á skólasafn.

Betur má ef duga skal!

Aðstoðarskólastjóri og skólasafnvörður

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn