Kennarar sem eru við kennslu þegar eldur kemur upp:
Þeirra eina hlutverk er að koma bekknum sem þeir eru að kenna klakklaust út úr húsinu. Það gerist með eftirfarandi hætti:
- Halda kyrru fyrir í stofu og hlusta eftir tilkynningu í kallkerfi
- Tekið manntal til að athuga hvort allir eru í stofunni. Notið nafnalista sem hanga uppi í öllum stofum.
- Áætluð útgönguleið könnuð, byrjað á að þreifa á hurðinni til að athuga hvort hún er heit.
- Ef leiðin reynist fær fer hópurinn út í einfaldri röð. Kennarinn fer síðastur út, tekur mætingalistann með sér og lokar stofunni. Nemendur eiga að smeygja sér í skóna sína í forstofu ef sú leið er notuð, annars ekki.
- Ef fyrsta útgönguleið er ófær er nemendum hjálpað út um björgunarop (neyðarútganga).
- Hópurinn er síðan leiddur út á þann stað sem tilgreindur er á plakati við stofudyr. Þar er tekið manntal aftur og ritara tilkynnt ef einhvern vantar.
- Beðið eftir tilkynningu frá skólastjórnendum eða slökkviliðsstjóra um næstu skref.
- Húsvörður - ritari taki frumkvæðið næst á eftir skólastjóra og aðstoðarskólastjóra. Að þeim forfölluðum eða fjarstöddum skal hver sem ekki er bundinn nemendahópi grípa inn í eftir því sem tilefni er til.
- Skólastjóri gefur fyrirmæli um hvað eigi að gera þegar búið er að taka manntal úti og allir eru úr hættu.
Ef kviknar í í frímínútum bera kennarar ábyrgð á hópnum sem þeir voru að kenna fyrir frímínútur.
Starfsfólk í blönduðum störfum og eldhúsi:
Hlutverk þess er að tryggja að ekki séu hindranir á leið nemenda út og að enginn verði eftir inni, t.d. á snyrtingum. Helstu atriði eru:
- Sjá til þess að útihurðir og millihurðir séu opnar til fulls.
- Færa reiðhjól og annað sem getur tafið nemendur á leið frá húsinu.
- Fara inn í allar kennslustofur, snyrtingar og önnur rými sem nemendur geta leynst í til að tryggja að enginn verði eftir inni.
- Ef aðstæður leyfa þarf að loka gluggum og hurðum til að tefja framrás eldsins. Kvikni í í frímínútum þarf fyrst og fremst að huga að tveimur síðustu liðunum.
Ritari:
Ritari fer út með forfallabók og möppu með stundaskrám og nemendalistum. Hann gengur milli kennara úti og athugar hvort vitað er um alla nemendur. Ef vafi leikur á að nemandi sé á öruggum stað lætur ritari skólastjórnendur vita og þeir gera viðeigandi ráðstafanir.
Hjúkrunarfræðingur:
Hjúkrunarfræðingur fer út með sjúkrakassa, teppi og annað er komið getur að gagni við aðhlynningu úti.
Skólastjórnendur og umsjónarmaður húsa:
Skólastjórnendur og umsjónarmaður húsa hafa öll samskipti við slökkviliðið. Það er einnig á þeirra ábyrgð hvort reynt er að fást við eldinn áður en slökkviliðið kemur á staðinn. Ennfremur ákveða þeir hvert nemendum er vísað þegar búið er að tæma húsið. Sér til aðstoðar hafa þeir kennara sem ekki eru að kenna þegar eldurinn kemur upp.
Kennarar sem ekki eru við kennslu þegar eldurinn kemur upp:
Kennarar sem ekki bera ábyrgð á bekk þegar elds verður vart gefa sig fram við stjórnendur til þeirra verka sem upp kunna að koma. Mikilvægt er að aðgerðum sé stjórnað af fáum aðilum en ekki sé fullt af sjálfskipuðum slökkviliðsstjórum úti um allt.
ATH:
Í hverju rými skólahúsnæðisins á að vera til staðar lýsing á rýmingarleiðum og neyðarútgöngum. Starfsmenn eru beðnir um að fylgjast með hvort þær lýsingar eru til staðar og leita úrbóta ef svo er ekki.
Fyrirmæli til nemenda:
· Ef viðvörunarkerfið fer í gang, þá verða allir að vita hvað á að gera, þannig að enginn lendi í alvarlegum vandræðum.
· Allir verða að gefa gott hljóð og hlusta vel eftir tilkynningum í kallkerfi hússins. Enginn má fela sig eða hlaupa í burtu.
· Þeir sem ekki eru inni í sinni stofu eiga að hraða sér þangað ef þeir eru ekki mjög langt frá, annars eiga þeir að slást í för með hóp í nærliggjandi stofu.
· Gefið kennara upplýsingar ef þið vitið um einhvern sem ekki er á sínum stað.
· Skiljið allt dót eftir inni í stofu. Ekki eyða tíma í að safna saman af borðinu. Enginn má taka töskuna sína með ef yfirgefa þarf húsið.
· Enginn má taka úlpuna sína, galla eða yfirhöfn. Hins vegar á að smeygja sér í skóna sína ef sú leið er farin.
· Verið viðbúin að raða ykkur upp í einfalda röð undir stjórn kennara, og ákveða fyrirfram hver fer fyrst og hver fer síðast. Aldrei má hlaupa af stað eða ryðjast á undan félögum sínum.
· Við förum út um venjulegar dyr, nema kennari gefi fyrirmæli um að nota neyðarútgang. Allir eiga að halda hópinn á leiðinni út og safnast saman undir stjórn kennara við skólahúsið. Enginn má stinga af. Það er stranglega bannað að hlaupa aftur inn í húsið þó að eitthvað hafi gleymst. Slökkviliðið hjálpar þeim sem ekki komast út sjálfir. Skólastjóri gefur fyrirmæli um hvað eigi að gera þegar búið er að taka manntal úti og allir eru úr hættu.








