Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Skólamenning

Ýmsir siðir og venjur hafa fest sig í sessi í skólastarfinu

Söngur á sal

Hefð er fyrir því að hafa samsöng á sal annað slagið. 

Hafragrautur

Nemendur fá hafragraut gjaldfrjálst í matsal skólans áður en kennsla hefst alla skóladaga. Nemendur á unglingastigi eiga einnig kost á að fá hafragraut í fyrstu frímínútum að morgni.

Morgunmóttökur

Morgunmóttökur eru settar á um það bil einu sinni á önn fyrir hvern árgang. Þá er foreldrum sérstaklega boðið að koma í skólann við óformlegar aðstæður, hitta aðra foreldra, starfsfólk og nemendur. Kennarar eru hvattir til að nýta morgunmóttökur til að koma á framfæri verkum nemenda með einum eða öðrum hætti. Það má þó alls ekki vera þvingandi eða bundið kvöðum. Rúnnstykki og kaffi er selt í matsal þessa morgna.

Útivistardagur

Útivistardagar eru einn á hvorri önn og íþróttakennarar skipuleggja þá í samráði við stjórnendur.

Þemadagar

Einu sinni á haustönn og/eða vorönn eru þemadagar þar sem skólastarfið er brotið upp og nemendur vinna að ákveðnum verkefnum í hópum þvert á bekkjardeildir. 

 Í desember er komin hefð á nokkra fasta liði, má þar nefna:

  • 1., 3. og 9. bekkur fara á Minjasafnið á aðventunni
  • 4. bekkur fer í heimsókn á Dvalarheimilið Hlíð
  • Miðstig hefur undanfarin ár haft jólaþema á aðventu.
  • 1.- 4. bekkur fara gjarnan í kirkju í stutta stund á aðventu, hlýða á hugvekju og syngja nokkur lög.
  • Verkstæði kennara. - Hefð er fyrir því að kennarar hittist við “öðruvísi” störf en venjulega, búin eru til verkstæði og skipt í hópa sem til dæmis syngja, sauma, mála, baka o.s.frv. 
  • Á unglingastigi hafa nemendur gjarnan spilað félagsvist eða annað síðasta kennsludag fyrir jólapróf.

Árshátíð

Stefnt er að því að halda eina stóra árshátíð þriðja hvert ár og árshátíðir árganga eða stiga þess á milli. Í ár verður ár verður haldin stór árshátíð - sjá skóladagatal.

Skólaslit

Skólaslit fara fram á sal skólans samkvæmt auglýstri tímasetningu. Að loknum skólaslitum fara nemendur í bekkjarstofur til umsjónarkennara og fá afhendan vitnisburð.

Skólaslit og útskrift 10. bekkinga er framkvæmd með viðhöfn á sal.  Foreldrar og nemendur í 9. bekk sjá um kaffihlaðborð þennan dag. Allt starfsfólk og velunnarar skólans eru hvattir til að mæta.

Félagslíf starfsfólks

Starfsfólk skipuleggur félagslíf vetrarins.  Aðstoðarskólastjóri eða viðkomandi skemmtinenfd sér um að auglýsa og minna á félagslífið. Í vetur er stefnt að stofnun starfsmannafélags starfsmanna Brekkuskóla.

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn