Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Skólamenning

Ýmsir siðir og venjur hafa fest sig í sessi í skólastarfinu

Söngur á sal

Hefð er fyrir því að hafa samsöng á sal annað slagið. Tónmenntakennari sér um söng á sal eða staðgengill hans.

Hafragrautur

Nemendur fá hafragraut gjaldfrjálst í matsal skólans áður en kennsla hefst alla skóladaga. Nemendur á unglingastigi eiga einnig kost á að fá hafragraut í fyrstu frímínútum að morgni.

Morgunmóttökur

Morgunmóttökur eru settar á um það bil einu sinni á önn fyrir hvern árgang. Þá er foreldrum sérstaklega boðið að koma í skólann við óformlegar aðstæður, hitta aðra foreldra, starfsfólk og nemendur. Kennarar eru hvattir til að nýta morgunmóttökur til að koma á framfæri verkum nemenda með einum eða öðrum hætti. Það má þó alls ekki vera þvingandi eða bundið kvöðum. Rúnnstykki og kaffi er selt í matsal þessa morgna.

Útivistardagur

Útivistardagar eru einn á hvorri önn og íþróttakennarar skipuleggja þá í samráði við stjórnendur.

Þemadagar

Einu sinni á haustönn og/eða vorönn eru þemadagar þar sem skólastarfið er brotið upp og nemendur vinna að ákveðnum verkefnum í hópum þvert á bekkjardeildir. 

 Í desember er komin hefð á nokkra fasta liði, má þar nefna:

  • 1., 3. og 9. bekkur fara á Minjasafnið á aðventunni
  • 4. bekkur fer í heimsókn á Dvalarheimilið Hlíð
  • Miðstig hefur undanfarin ár haft jólaþema á aðventu.
  • 1.- 4. bekkur fara gjarnan í kirkju í stutta stund á aðventu, hlýða á hugvekju og syngja nokkur lög.
  • Verkstæði kennara. - Hefð er fyrir því að kennarar hittist við “öðruvísi” störf en venjulega, búin eru til verkstæði og skipt í hópa sem til dæmis syngja, sauma, mála, baka o.s.frv. 
  • Á unglingastigi hafa nemendur gjarnan spilað félagsvist eða annað síðasta kennsludag fyrir jólapróf.

Námsferðir

Kiðagil - 4. bekkur: Í 4. bekk hefur skapast sú hefð að fara að Kiðagili. Hér áður fyrr stóð skólinn fyrir þessum ferðum, en í kjölfar efnahagshrunsins var ákveðið að fella þær niður. Þrátt fyrir það hafa foreldrar tekið sig saman og farið í þessa ferð og séð þá alfarið um að greiða allan kostnað. Kennarar þurfa að ákveða sjálfir hvort  þeir fara í ferðina og þá á kostnað foreldra (yfirvinna) samkvæmt kjarasamningum. Skólinn leggur áherslu á að kennarar semji samkvæmt sínum kjarasamningum ef þeir ákveða að fara í slíka ferð. Skólinn getur aldrei samþykkt það að kennarar þiggi laun utan við skattalöggjöf. Það verður að vera samstarfsverkefni skóla og foreldra ef foreldrar fara fram á aukastarfskraft vegna nemenda sem þurfa sérstakan stuðning í slíkar ferðir.

Reykjaferð - 7. bekkur: Skólinn stendur fyrir Reykjaferð (Reykir í Hrútafirði) ár hvert fyrir 7. bekk og greiðir laun kennara í slíkum ferðum skv. úrskurði frá Menntamálaráðuneytinu, enda undirbýr skólinn í samstarfi við foreldra þessar ferðir. Söfnun hefst þegar nemendur eru í 6. bekk í samstarfi við skólann, með sölu á brauðbollum í morgunmóttökum og á árshátíð skólans það skólaár (Ævintýraland). Foreldrar geta í samstarfi við skólann ákveðið að fara ekki í ferðina. Á sama hátt getur skólinn einnig ákveðið að fara ekki í ferðina ef aðstæður í skólanum er þannig að háttað að skólinn sjái ekki annan kost í stöðunni.

Skólaferðalag við lok 10. bekkjar: Skólaferðalag er farið að vori við lok 10. bekkjar í samstarfi við foreldra. Fjáröflun fer fram allan veturinn og sjá 10. bekkingar um kaffihlaðborð ofl. á árshátíð og sölu á brauðbollum á elsta stigi. Að öðru leyti er fjáröflun skipulögð af foreldrum í samstarfi við fulltrúa frá skólanum. Undanfarin ár hefur það verið Hanna Dóra. Skólinn greiðir laun eins kennara að fullu í ferðina og hafa foreldrar greitt fyrir annan kennara og/eða foreldri sem fer einnig með.

 

Árshátíð

Stefnt er að því að halda eina stóra árshátíð á hverju skólaári. Síðustu ár hefur hún verið haldin í febrúarmánuði.

Skólaslit

Skólaslit fara fram á sal skólans samkvæmt auglýstri tímasetningu. Að loknum skólaslitum fara nemendur í bekkjarstofur til umsjónarkennara og fá afhendan vitnisburð.

Skólaslit og útskrift 10. bekkinga er framkvæmd með viðhöfn á sal.  Foreldrar og nemendur í 9. bekk sjá um kaffihlaðborð þennan dag. Allt starfsfólk og velunnarar skólans eru hvattir til að mæta.

Félagslíf starfsfólks

Starfsfólk sjálft skipuleggur félagslíf vetrarins. Stofnað hefur verið starfsmannafélag Brekkuskóla. Stjórn þess sér um að framfylgja lögum þess og framkvæmdaáætlun ár hvert.

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn