Skilgreining Menntamálaráðuneytis á kennsludegi.
Ráðuneytið lítur svo á að skólar hafi á starfstíma grunnskóla nokkuð svigrúm til að skipuleggja kennslu og annað skólastarf á skólaárinu að teknu tilliti til lágmarksréttinda nemenda til kennslu. Skal þess þó ætíð gætt að kennslustundafjöldi sem nemendur eiga rétt á sbr. ákvæði 2. mgr. 28. gr. grunnskólalaga sé ekki skertur.
Vikulegur kennslutími hvers nemanda í grunnskóla skal að lágmarki vera:
1200 mínútur (30 kennslustundir) í 1.–4. bekk
1400 mínútur (35 kennslustundir) í 5.–7. bekk
1480 mínútur (37 kennslustundir) í 8.–10. bekk“
Skólanefnd mun ganga eftir því að skóladagatöl grunnskólanna uppfylli fyrrgreinda skilgreiningu.
Kennsludagar eru 170
Aðrir skóladagar eru 10, þá má nota til ýmiskonar starfs s.s. skólasetningar, skólaslita, foreldradags, litlu jóla og prófa.
Tvöfaldir skóladagar eiga að heyra til undantekninga, en ef aðstæður kalla á það, gætu þeir orðið að hámarki 2.
Þessi viðmið eru sett skólasamfélaginu á Akureyri til leiðbeiningar og gefa til kynna hvað skólanefnd leggur til grundvallar þegar hún fær skóladagatal hvers skóla til staðfestingar.








