Vegvísir með námsmati
Í skólanámskrá Brekkuskóla segir:
„Í upphafi hvorrar annar er áætlun um námsmat birt jafnhliða námsmarkmiðum hverrar námsgreinar í Mentor.”
Það gerum við með því að:
- Setja upp og birta námsáætlanir í Mentor ásamt áætlun um námsmat í upphafi hvorrar annar. Mikilvægt er að námsmatið sé lýsandi og vel útskýrt. Dæmi: Ef hakað er við jafningjamat þá útskýri kennari hvernig það verður framkvæmt með því að velja “pennann á skrifblokkinni “ og skráir þar nánari lýsingu á því hvernig hann hyggst framkvæma matið. Lýsingar á námsmatshugtökum má finna í ýmsum bókum og á vef. (Ingvar Sigurgeirsson, Þóra Björk Jónsdóttir ofl.)
- Í dálknum „Annað” sem er aftast í einingunni námsáætlanir má setja nánari lýsingar á kennsluaðferðum, námsgögnum og námsmati s.s. tímaáætlanir ofl.
Úr skólanámskrá:
„Skólinn kostar kapps um að fylgjast sem best með námi nemenda og árangri kennslunnar. Þetta er fyrst og fremst gert með símati/leiðsagnarmati og er þá fylgst reglubundið með hverjum nemanda fyrir sig. Megintilgangur námsmats er að örva, aðstoða og hvetja nemendur til sjálfsmats um leið og foreldrum og öðrum aðilum sem málið varða eru veittar sem gleggstar upplýsingar um gengi nemandans á hverjum tíma. Stefnt er að því að auka enn frekar á fjölbreytni í námsmati í skólastarfinu með fræðslu og endurmenntun kennara. Viðmið um námsmat eru í sífelldri endurskoðun. Námsmat Brekkuskóla birtist bæði í umsögn og/eða tölum, en nú einnig í námsferilsmöppum (sjá neðar). Samsetning námsmats fyrir hverja námsgrein er kynnt nemendum í upphafi annar jafnhliða kynningu á námsmarkmiðum. Nemendur og foreldrar geta fylgst með markmiðum, ástundun og árangri á www.mentor.is."
„Námsmatsstofnun leggur skólanum til samræmd próf í íslensku og stærðfræði hjá 4., 7. og 10. bekk en jafnframt í ensku í 10. bekk. Prófin eru framkvæmd að hausti” og áhersla lögð á að þau séu til leiðsagnar.
„Í lok hvorrar annar gefur skólinn út vitnisburð um nemendur."
Á hverju byggist námsmatið ?
Í Brekkuskóla leggjum við áherslu á leiðsagnarmat sem við skilgreinum sem allt mat sem vísar nemanda, foreldrum og kennara í átt að settu marki. Leiðsagnarmat tengir daglegar matsvenjur við nám og kennslu og það gerum við með því að :
• Ræða hvað á að læra
• Veita því eftirtekt þegar nám hefur átt sér stað
• Veita gagnlega svörun á réttum tíma sem styður næstu þrep í námi
Fjölbreytt námsmat gefur nákvæmari upplýsingar um frammistöðu hvers nemanda yfir allt kennslutímabilið og það byggist á þekkingarmati, sjálfsmati, jafningjamati, mati á verkefnum, vinnusemi og ástundun svo dæmi séu tekin. Námsmat sem safnað er upp yfir ákveðið tímabil köllum við símat.
Námsferilsmöppur/sýnismöppur eru hluti af námsmati
Í námsferilsmöppur safna nemendur verkefnum yfir veturinn og eru einstök verkefni hluti af námsmati í 1. - 8. bekk. Sett hafa verið upp viðmið um það hvað möppurnar eiga að innihalda og er umsjónarkennurum ætlað að halda utan um möppuna með umsjónarnemendum sínum.
Dæmi um það sem fara á í möppur nemenda má sjá hér.
Birting námsmats
Gefnar eru umsagnir í 1. – 4. bekk í öllum námsgreinum.
Umsögn felur í sér leiðsagnarmat í viðkomandi námsgreinum. Ekki eru gefin einkunnarorð lengur. Einkunnardálkur á
vitnisburðarspjaldi er tómur.
Almenn umsögn um nemandann kemur einnig fram neðst á vitnisburðarblaði. Með almennri umsögn er átt við lýsandi, persónulegri umsögn um framfarir nemandans og hvatningu og væntingar um framhaldið. (Góð regla er + - + sem er að byrja og enda á jákvæðri umsögn og láta það neikvæða ef eitthvað er koma fram í miðju málsgreinar.)
Gefnar eru einkunnir í 5. – 10. bekk í heilum og hálfum tölum í öllum námsgreinum.
Að baki talna í 5. – 10. bekk skal lokapróf að hámarki gilda 50% af lokaeinkunn.
Almenn umsögn um nemandann komi fram neðst á vitnisburðarblaði.Með almennri umsögn er átt við lýsandi, persónulegri umsögn
um framfarir nemandans og hvatningu og væntingar um framhaldið. (Góð regla er + - + sem er að byrja og enda á jákvæðri umsögn og láta
það neikvæða ef eitthvað er koma fram í miðju málsgreinar.) Umsjónarkennari sér um almenna umsögn.
Punktakerfi vegna skólasóknareinkunnar hefur verið lagt niður, en áfram er skráð í mentor varðandi alla ástundun nemandans!
Mat á miðri önn og samskipti við foreldra
Gert er ráð fyrir að umsjónarkennarar séu í stöðugum og góðum samskiptum við foreldra. Á föstudögum er sendur út svokallaður "föstudagspóstur" um vikuna sem var að líða og hvað er framundan.
Á miðri önn ( október/nóvember og mars) er opnað fyrir leiðsagnarmat í mentorkerfinu sem nemendur ásamt foreldrum sínum annars vegar og kennarar hins vegar svara um námsframvindu og líðan viðkomandi nemanda.
Á miðri önn taka umsjónarkennarar persónuleg nemendaviðtöl og í framhaldi hafa þeir samband við heimilið þar sem til umræðu er námsframvinda og líðan nemandans.
Skimunarpróf
Þau börn sem verið hafa í leikskóla á Akureyri fara í gegnum skimunarprófið Hljóm og berast niðurstöður þess til skólans áður en barn hefur grunnskólagöngu.
1. bekkur: Skimunarprófið Tove Krogh lagt fyrir alla nemendur, bæði að hausti og vori. Lestrarprófið Læsi 1. hefti er lagt fyrir í nóvember og 2. hefti um miðjan febrúar. Stafakönnun er einnig lögð fyrir eftir mati kennara.
1. – 4. bekkur:Stafakannanir Rannveigar Löve ( 1. – 10.) eru lagðar fyrir eftir þörfum. Ef nemendur sýna merki um erfiðleika við lestrarnámið eru Aston Index og lestrarkannanir Rannveigar Löve lagðar fyrir þá. Mat á lestrargetu eftir Þorstein Sigurðsson eru einnig notuð ef þurfa þykir.
4. bekkur:Samræmd próf í október.
5. bekkur: Nemendur sem víkja verulega frá viðmiðun Fluglæsis í 5.bekk fara gjarnan í GRP 10 lesblindupróf.
1. – 7. bekkur: Reglulegar prófanir í lestri. Hraðlestrarpróf sem mæla lesin atkvæði á mínútu eru gjarnan höfð sem viðmið um árangur. Lesskilningsprófum fjölgar eftir því sem líður á skólagönguna.
7. bekkur:Samræmd próf í október
9. bekkur:GRP 14 lagt fyrir sem skimunarpróf fyrir lesblindu.
Umsjón með skimunarprófum í skólanum hefur Helga Sigurðardóttir








