Litlu jól Brekkuskóla

Frístund opnar kl.08:00 fyrir nemendur sem þar eru skráðir. Skólabíll gengur á venjulegum tíma og er kominn við skólann f. kl. 8:00.

Nemendur í 2., 4., 7. og 10. bekk mæta klukkan 08:00 í heimastofur. Klukkan 09:00 koma þau á sal skólans, þar sem verður dansað í kringum jólatré. Skóladegi lýkur klukkan 10:00 og Frístund opnar þá fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur 3. , 8. og 5. bekk mæta klukkan 09:00 í heimastofur. Klukkan 10:00 koma þau á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur um klukkan 11:00 og Frístund verður opin fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur í 1., 6. og 9. bekk mæta klukkan 10:00 í heimastofur. Klukkan 11:00 koma þau á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur um klukkan 12:00. Frístund verður opin fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Kennsla hefst á nýju ári þann 3. janúar samkvæmt stundaskrá.