Litlu jólin

Litlu jólin 21. desember 2017

Nemendur í 4., 7. og 10. bekk mæta klukkan 08:00 í heimastofur. Klukkan 09:00 koma þeir á sal skólans, þar sem verður dansað í kringum jólatré. Skóladegi lýkur milli klukkan 9:30 og 10:00 og Frístund opnar fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur í 3. , 6., og 8. bekk mæta klukkan 09:00 í heimastofur. Klukkan 10:00 koma þeir á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur milli klukkan 10:30 og 11:00 og Frístund verður opin fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur í 1., 2., 5. og 9. bekk mæta klukkan 10:00 í heimastofur. Klukkan 11:00 koma þau á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur milli klukkan 11:30 og 12:00. Frístund verður opin fyrir nemendur sem þar eru skráðir. Starfsdagur verður miðvikudaginn 3. janúar. Kennsla hefst á nýju ári samkvæmt stundaskrá þann  4. janúar 2018.

Frístund opnar kl.08:00 fyrir nemendur sem þar eru skráðir.