Jafnréttisáætlun
Brekkuskóla
Úr jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar:
"Í nýjum námskrám fyrir leikskóla og grunnskóla er jafnrétti skilgreint sem einn þeirra grunnþátta sem menntun skal byggja
á. Jafnrétti skal því birtast í inntaki námsgreina og námssviða aðalnámskrár, í hæfni nemenda, námsmati,
skólanámskrá og innra mati skóla. Leikskólar og grunnskólar bæjarins hafa sett sér jafnréttisáætlanir þar sem
kveðið er á um jafnrétti í skólastarfi. Verkefni: Leikskólar og grunnskólar skulu vinna að jafnréttismálum í samræmi
við lög og reglugerðir. Jafnréttisáætlanir skulu endurskoðaðar reglulega. Settur verður á laggirnar vinnuhópur sem hefur það
verkefni að skilgreina þau viðmið sem nota skal við mat á stöðu jafnréttismála í skólunum sem og hvernig standa skuli að mati.
Ábyrgð: Skólastjórar, fræðslustjóri. Áfangar: Vinnuhópur skal ljúka störfum í lok maí 2012. Í
sjálfsmatsskýrslum skóla skal með reglubundnum hætti gera grein fyrir stöðu jafnréttismála út frá þeim viðmiðum sem
sett verða". (
Jafnréttisstefna
Akureyrarbæjar 2011 - 2015)