Samantekt
Brekkuskóli, 18.06.2026
Inngangur
Þessi skýrsla fjallar um helstu viðfangsefni innra mats í Brekkuskóla. Sett er fram langtímaáætlun til fimm ára.
Einnig áætlun fyrir skólaárið 2025-2026 sem sýnir viðfangsefni matsins, hvenær þau eru metin ásamt lýsingu
á því hvernig matið fer fram. Fjallað er um innra mat í Brekkuskóla, helstu áherslur í gæðastarfi og mati sem
framkvæmt var í vetur. Helstu niðurstöður eru settar fram. Í lokin eru birtar umbótaáætlanir fyrir skólaárin
2025-2026 og 2026-2027.
Í Gæðaráði Brekkuskóla sátu: Aðalheiður Bragadóttir, Halla Kristín Tulinius, Hallgrímur Ingi Vignisson, Jóhanna
María Agnarsdóttir, Sara Mist Jóhannsdóttir, Sigríður Margrét Hlöðversdóttir
Um innra mat skólans
Markmið með innra mati Brekkuskóla er að bæta árangur og gæði skólastarfsins. Unnið er út frá útgefnum
gæðaviðmiðum um skólastarf, áherslum skólans og Menntastefnu Akureyrarbæjar sem skiptist í þættina:
Stjórnun og fagleg forysta
Nám og kennsla
Innra mat
Innra mat er orðinn fastur liður í skólastarfinu og tekur starfsfólk, foreldrar og nemendur þátt í því en
Gæðaráð leiðir matið og heldur utan um matsgögn. Ár hvert eru ákveðin verkefni og atburðir í skólanum
metnir og auk þess valdir þættir út frá Menntastefnu Akureyrar. Í þessu ferli eru nýttar fjölbreyttar leiðir og
matstæki. Þetta starf er í stöðugri endurskoðun og þróun. Þessi markvissa vinna og þátttaka styður við
skólaþróun í Brekkuskóla.
Skólaárið 2025-2026 var áhersla á mat og úrbætur út frá kaflanum Stjórnun og fagleg forysta. Einnig var
unnið með tvo þætti úr Námi og kennslu sem og einn þátt í Innra mati. Í innra mati í vetur var notast við
Skólapúls fyrir nemendur og foreldra. Tengslakannanir lagðar fyrir nemendur, ásamt ýmsum könnunum sem
útbúnar eru í skólanum. Einnig kannanir sem koma utan frá t.d. starfsmannakannanir frá Akureyrarbæ.
Rýnihópar starfsfólks, vorskýrslur kennarateyma og skólaþing eru einnig mikilvægir þættir í innra mati.
Námsárangur nemenda var metinn í gegn um leiðsagnarnám þar sem fjölbreyttar matsaðferðir eru notaðar og
notuð bæði óformleg og stöðluð matstæki. Lesfimi í 1.-10. bekk og Matsferlar í íslensku og stærðfræði fyrir
4.-10. bekk voru lagðir fyrir í öllum árgöngum. Sjá matsáætlun fyrir skólaárið.
[TOC Kafli 1 Innra mat skólans]
Kafli 1 Innra mat skólans