Brekkuskóli Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri

Nýjustu fréttir

Enginn titill

Kæru foreldrar.  Stjórn foreldrafélags Brekkuskóla óskar eftir að tveir fulltrúar í þessum bekk bjóði sig fram í starf foreldrafulltrúa. Einnig hvetur stjórnin ykkur til að skipuleggja viðburði og skipta með ykkur verkum áður en þið yfirgefið þennan fund. Það er svo í hlut foreldrafulltrúa að ýta eftir að viðburðirnir verði að veruleika.  Foreldrafulltrúar verða boðaðir á fund með stjórn foreldrafélagsins í október .   Foreldrafulltrúar eru tengiliðir bekkjarins við umsjónarkennara, stjórn félagsins og stjórnendur skólans ef svo ber við            

Bestu kveðjur og óskir um farsælt samstarf.

Eyðublað fyrir foreldrasamstarf í bekkjum.


Ađalfundur foreldrafélagsins 2011

Í kvöld var haldinn Aðlafundur foreldrafélags Brekkuskóla. Að þessu sinni var ákveðið að hafa fundinn að hausti í stað þess að hafa fundinn að vori eins og venja hefur verið, í þeirri von að foreldrar fjölmenntu á fundinn. Það má segja að það hafi verið fámennt en góðmennt en 10 foreldrar sáu sér fært að mæta til fundar. Kristján Magnússon, sálfræðingur, flutti erindi um samskipti fullorðinna og barna og vakti viðstadda til umhugsunar um mikilvægi foreldrahlutverksins og þess að sýna ábyrgð í orðum og verki. Þessir fáu, en frábæru, foreldrar sem mættu voru mjög svo viljugir til þátttöku í uppbyggingu skólastarfsins og sitja nú 11 fulltrúar úr hópi foreldra í stjórninni. Það er spurning hvort erindi Kristjáns hefur kveikt í foreldrum en hver sem ástæðan er  þá fagnar stjórnin því að fá svo marga foreldra til liðs við sig, húrra húrra.

Fundargerð er að finna hér

Ritari: Drífa þórarinsdóttir


Hreyfistrćtó stoppar

Kæru foreldrar

Á fundi stjórnar foreldrafélag Brekkuskóla, þann 6. desember síðastliðinn, var ákveðið að hætta með verkefnið Hreyfistrætó. Stjórnin vill þakka þeim foreldrum og nemendum sem lögðu verkefninu lið og gerðu okkur mögulegt að halda Hreyfistrætó gangandi í 10 vikur.

Hreyfistrætó miðar að því að efla hreyfingu barna og öryggi þeirra á leið sinni í skólann og voru það skjúkraþjálfarar á Akureyri sem kynntu verkefnið í upphafi og hvöttu Grunnskólana á Akureyri til að setja Hreyfistrætó í gang enda þarft verkefni.

Brekkuskóli var eini skólinn sem sló til sem var virkilega skemmtilegt og megum við vera virkilega stolt. Við vonum því að hægt verði að endurvekja verkefnið síðar og hver veit nema með hækkandi sól muni það fara aftur í gang og áhugi fyrir hreyfingu vakni meðal nemenda og foreldra skólans.

 

Bestu þakkir

Stjórn foreldrafélags Brekkuskóla

 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn