Svefnþörf

Svefnþörf barna og unglinga

• Fleiri nemendur en áður mæta í skólann of seint, þreyttir og óúthvíldir. Sérstaklega ber að athuga stöðuna hjá þeim nemendum sem hafa sjónvarp og / eða tölvu í herbergum sínum.  Foreldrar vita oft ekki af því að krakkarnir eru vakandi löngu eftir að foreldrar fara að sofa.

 • Það eru til krakkar sem hafa gsm-símann í eða við rúmið og eru alltaf viðbúin því að hann hringi eða gefi frá sér píp sem segir til um að viðkomandi hafi fengið skilaboð. Krakkar nái ekki djúpa svefninum sem er nauðsynlegur til að fá raunverulega hvíld og svefnlotur verða styttri.

• En hver er svefnþörfin?            5 til 8 ára 10 - 12 klst.
                                                      9 til 12 ára 10 - 11 klst.
                                                      13 til 15 ára 9 - 10 klst. 

• Þeir sem ekki fá nægan svefn og hvíld safna upp "svefnskuld", jafnvel þó svo að þeim finnist þeir úthvíldir og alls ekki í þörf fyrir að sofa lengur. 

• Ef of lítill svefn er viðvarandi þá er vaknað að morgni með "tóman tank" og skóladagurinn byrjar ekki eins og best verður á kosið. 

• Viðvarandi svefnskortur getur leitt til; þunglyndis, einbeitingarskorts, minni námsárangurs, skertra viðbragða og minna úthalds.  

• Í Bandaríkjunum var gerð tilraun á mjög góðum námsmönnum þar sem hver og einn var "rændur" klukkustundar svefni á nóttu. Niðurstöður urðu mælanlegri minni námsárangur og skortur á einbeitingu.

 • Áhugavert að fá nemendur til að halda svefndagbók í eina til tvær vikur þar sem þeir skráðu hjá sér; hvenær farið er að sofa, hve lengi sofið, hvort sofið er á daginn og hvað nemendur eru að gera áður en þeir fara að sofa.

 • Á kynþroskaaldri virðist líkamsklukkan gefa frá sér þau skilaboð að unglingurinn upplifir sig úthvíldan og að hann hafi sofið nóg - finna ekki fyrir þreytu. En í raun eru þetta röng skilaboð því unglingar verða að sofa og fá nægilega hvíld.

 • Þeir sem eru að horfa í tölvuskjá / sjónvarp rétt áður en farið er að sofa finna oft fyrir því að svefninn lætur á sér standa. Það er birtan og sindrandi geislar frá skjánum sem virkar örvandi og dregur þar með úr getunni til að sofna. Í herbergjum barna og unglinga er oft stutt í sjónvarpið og setið er ofan í tölvuskjánum þannig að útgeislunin er mikil og beint í andlitið.

 • Góð leið til að komast í ró er að lesa eða láta lesa fyrir sig, fara í heitt bað, markviss slökun og góð og regluleg hreyfing.

 • Einnig þarf að hafa það í huga að í kóladrykkjum + kaffi og te er koffín sem er örvandi og torfeldar þess vegna svefn. Börn og unglingar á Íslandi drekka óhóflega mikið af gosdrykkjum og þar eru kóladrykkir stór hluti.

 • Ofbeldis- og spennuleikir seint að kvöldi hafa örvandi áhrif á hugarástandið og því erfiðara að finna nauðsynlega ró sem er nauðsynleg til að sofna

(tekið af vef Heimilis og Skóla, www.heimiliogskoli.is )