Ályktun foreldrafélags Brekkuskóla

                                                                                                                                                Akureyri 06.05.2019

 

Ályktun foreldrafélags Brekkuskóla

  

Stjórn foreldrafélags Brekkuskóla mótmælir því að börnum í Brekkuskóla sé gert að nota sal íþróttahússins á sama tíma og framhaldskóli.  Það fer illa saman að vera með 6 til 15 ára börn í sama sal á sama tíma og  fullorðið fólk 16-25 ára. Að því er við best vitum er þetta eini grunnskólinn hér á landi sem er gert að nota íþróttasal á sama tíma og framhaldsskóli.

 

 

Virðingarfyllst stjórn foreldrafélags Brekkuskóla