Bíllausi dagurinn 22. september

Brekkuskóli tekur þátt í bíllausa deginum sem er hluti af Evrópsku samgönguvikunni sem stendur frá föstudeginum 16. september og lýkur á bíllausa deginum fimmtudaginn 22. september. Yfirskriftin í ár er: Better connections / Veljum fjölbreytta ferðamáta.  

Fimmtudagurinn 22. september ber yfirskriftina bíllausi dagurinn. Markmiðið með deginum (og í raun vikunni allri) er að

hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Í tengslum við daginn verður Hafnarstræti lokað fyrir bílaumferð í nokkrar klukkustundin og vakin verður athygli á því að ókeypis er í strætó.  Brekkuskóli tekur þátt með því að hvetja alla, nemendur, starfsfólk og foreldra til að nota vistvænan ferðamáta og sleppa bílnum þennan dag.