Félagsmiðstöð

OPIN HÚS Í FÉLAGSMIÐSTÖÐVUM AKUREYRAR

Félagsmiðstöð Brekkuskóla fyrir 8-10 bekk ber heitið Trója og er staðsett á 4. hæð í Rósenborg. Félagsmiðstöðin býður upp á opið starf þar sem unglingarnir sjálfir, undir handleiðslu starfsmanna, skipuleggja og sjá um viðburði. 

Opnunartímar í Tróju eru sem hér segir:

  • Mánudagar: 20:00-22:00 
  • Þriðjudagar: 13:30-15:30 
  • Miðvikudagar: 20:00-22:00
  • Fimmtudagar: 13:30-15:30

Fréttabréf Tróju er á: https://padlet.com/felagsmidstodvar/troja_frettabrefÞar koma inn allar helstu upplýsingar um starfsemi Tróju en einnig er hægt að fylgjast með á samfélagsmiðlum Tróju og Félagsmiðstöðva Akureyrar á:

Facebook – www.facebook.com/FELAK123 

Instagram- www.instagram.com/troja_felagsmidstod

Á opnu húsi viljum við að allir hafi gaman og viðmiðið er að unglingar viti hvað má og hvað má ekki án þess að taka þurfi það sérstaklega fram hverju sinni. Hins vegar er ágætt að minna á að unglingunum er óheimilt að vera með í vörslu sinni eftirtalda hluti í félagsmiðstöðinni, jafnt innan dyra sem utan, og í ferðum á vegum hennar:

  • Orkudrykki
  • Áfengi
  • Vape
  • Tóbak og aðra vímugjafa 

Séu reglur félagsmiðstöðvarinnar brotnar er haft samband við foreldra. 

Allir nemendur í 8.-10. bekk eru velkomnir í allar félagsmiðstöðvar á Akureyri en þær eru 6 samtals. Mætingarstig gilda á milli félagsmiðstöðva og með þeim öðlast krakkarnir rétt á þátttöku á Samfesting, aðalviðburð Samfés, sem fer fram að vori til á hverju ári.

Umsjónarmaður Tróju er Hallgrímur Ingi Vignisson, Forvarna- og félagsmálaráðgjafi Brekkuskóla. Ef að einhverjar spurningar vakna þá er hægt að hafa samband í:

 

Opnunartímar annarra félagsmiðstöðva á Akureyri eru eftirfarandi: 

  • Dimmuborgir í Giljaskóla - þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20:00 - 22:00
  • Undirheimar í Síðuskóla - mánudaga og miðvikudaga kl.20:00 – 22:00
  • Stjörnuríki í Oddeyrarskóla - mánudaga og fimmtudaga kl. 20:00 – 22:00
  • Himnaríki í Glerárskóla - mánudaga og miðvikudaga kl. 20:00 – 22:00
  • Naustaskjól í Naustaskóla - þriðjudaga og fimmtudaga kl. 20:00 - 22:00

Starf Miðstigs

Miðstigsopnanir eða opin hús eru fyrir börn í 5. – 7. bekk. Þær eru í eina og hálfa klukkustund í senn í hverri félagsmiðstöð. Hver skóli er með fjögur opin hús á önn. 
Starfið er með þeim hætti að starfsmenn Félak skipuleggja dagskrá fyrir öll opin hús vetrarins en krakkarnir hafa val um að fylgja dagskránni eða einfaldlega njóta þess sem félagsmiðstöðin hefur að geyma; spila borðtennis, hlusta á tónlist o.s.frv. undir eftirliti og leiðsögn starfsmanna.

M65 er klúbbastarf fyrir 5. og 6. bekk. Unnið er eftir hugmyndafræði Timewise sem gengur út á að kenna þeim lýðræðislega hugsun, taka þátt í hóp, vera meðvituð um hvernig þau nýta frítíma sinn og gera ýmislegt til að örva félagsþroskann. Ásamt því að gera ýmislegt skemmtilegt.

Pop-up viðburðir eru hugsaðir fyrir 7.bekki á Akureyri. Þrátt fyrir að 7. bekkingar séu á miðstigi lenda þau oft á milli miðstigs og unglingastigs, en þau mættu vera duglegri að sækja opin hús. Þess vegna eru þessir viðburðir hugsaðir eingöngu fyrir þau.

Umsjón með opnum húsum, viðburðum, klúbbum og fræðslum á miðstigi eru Andri Már Mikaelsson og Hulda Ósk Jónsdóttir. Hægt er að hafa samband við þau í tölvupósti andri.mar.mikaelsson@akureyri.is og hulda.osk.jonsdottir@akureyri.is og í síma 460-1234

Allar upplýsingar um starfsemi á miðstig er hægt að nálgast á Facebook síðu Miðstigs Félak: https://www.facebook.com/profile.php?id=100070091800189