Óveður

Viðbrögð í grunnskólum þegar tvísýnt er um færð og veður

1.       Meginreglan er sú að leik- og grunnskólar eru opnir nema lögregla gefi út tilmæli um að fólk sé ekki á ferli. 

2.      Ef skólahald fellur niður þá sendir skóladeild tilkynningu þess efnis á RÚV og Bylgjuna fyrir kl. 7.00 að morgni.

3.       Öllum skólum ber að setja tilkynningu á heimasíðu í þeim tilfellum sem tvísýnt er með veður og færð eða þegar skólahald er fellt niður. Einnig skulu skólar senda út póst í Mentor með sömu tilkynningu.

4.       Við tvísýnar aðstæður sem geta verið breytilegar eftir bæjarhlutum þá er það ávallt foreldra/ forráðamanna að meta hvort þeir treysti börnum sínum í skóla og fylgi nemendum í 1.-7. bekk inn í skólann.

Mikilvægt er að láta vita í skólann í netfangið brekkuskoli@akureyri.is ef barnið er heima.

 5.       Ef skólahaldi er ekki aflýst er tryggt að starfsfólk sé til staðar á auglýstum skólatíma í öllum skólum. Börn sem koma í skólann eru ekki send heim áður en skólatíma lýkur.