Bingó í Brekkuskóla

Fimmtudaginn 29. október kl. 17:00 standa nemendur í 10. bekk fyrir bingói í sal skólans. Allur ágóði af bingóinu rennur í ferðasjóð 10. bekkinga og verður nýttur til að fjármagna vorferð þeirra.

Glæsilegir vinningar verða í boði!

Krakkarnir í 10. bekk vonast til að sjá sem flesta og eiga saman skemmtilega stund.

Mætum, skemmtum okkur og styrkjum gott málefni!