Upphátt

Upplestrarkeppnin Upphátt, sem haldin er fyrir grunnskóla á Akureyri, fór fram í Brekkuskóla í gær. Að mati dómnefndar og gesta var upplesturinn sérlega vandaður í ár og sjaldan hafa gæðin verið jafn mikil. Þá var keppnin einnig mjög jöfn og erfitt að gera upp á milli þátttakenda.

Reynir Gunnar Þórðarson og Birgitta Ósk Orradóttir, fulltrúar Brekkuskóla, stóðu sig mjög vel í keppninni og voru til mikils sóma.

Í lok keppninnar varð Hákon Geir úr Lundarskóla hlutskarpastur. Birgitta Ósk úr Brekkuskóla hafnaði í öðru sæti og Friðrik úr Glerárskóla í því þriðja.

Hér má sjá myndir frá athöfninni