Göngum í skólann

Brekkuskóli  hefur ákveðið að taka þátt í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Embætti landlæknis, Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Samgöngustofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla. Göngum í skólann var sett miðvikudaginn 4. september og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 2. október.

Þetta er í þrettánda sinn sem verkefnið er haldið hér á landi og hefur þátttaka aukist jafnt og þétt. Megin markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar, að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir virkum ferðamáta og umhverfismálum og það hversu “gönguvænt” umhverfið er. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess www.gongumiskolann.is

Við hvetjum alla til að nota virkan ferðamáta.