Heimsókn í Framhaldsskólann á Laugum

Síðastliðinn þriðjudag fóru nemendur í 9. og 10. bekk í heimsókn í Framhaldsskólann á Laugum. Farið var af stað með rútu um morguninn og nutu nemendur góðrar ferðar í skemmtilegum félagsskap.

Við komuna á Lauga fengu nemendur hlýlegar móttökur og fræðslu um skólann. Nemendur fengu kynningu um námið, aðstöðuna og skólastarfið og fengu því góða innsýn í hvernig lífið er í framhaldsskóla. Heimsóknin er liður í því að kynna fyrir nemendum þau tækifæri sem bíða þeirra að grunnskóla loknum og hjálpa þeim að undirbúa næstu skref í námi.

Að kynningu lokinni var nemendum boðið í hádegisverð í matsal skólans sem var vel þegið eftir fróðlegan og viðburðaríkan morgun

Heimsóknin tókst vel og þökkum við Framhaldsskólanum á Laugum kærlega fyrir hlýjar móttökur og skemmtilegan dag.

 

Hér má sjá nokkrar myndir