Íslandsmót grunnskóla í skák - stúlknaflokkur

Íslandsmót grunnskóla – stúlknaflokkur fer fram í Rimaskóla laugardaginn 28. janúar og hefst kl. 13.

Brekkuskóli stefnir á þátttöku.   Teflt verður í þremur flokkum. 
Fyrsti og annar bekkur Fimm umferðir með tímamörkunum 4+2.
Þriðji til fimmti bekkur Sex umferðir með tímamörkunum 6+2.
Sjötti til tíundi bekkur Sex umferðir með umhugsunartímanum 8+2

Umferðafjöldi getur breyst með tilliti til fjölda þátttökuliða. Keppendur geta teflt upp fyrir sig, þ.e. með eldri sveit síns skóla. Í hverri sveit skulu vera fjögur borð. Varamenn mega vera allt að þrír. Engin takmörk eru fjölda liða frá hverjum skóla.

Veitt verða verðlaun fyrir bestu b- og c-sveitir í hverjum flokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir bestu landsbyggðarsveitir.