Litla upplestrarhátíðin

Nemendur í 4. bekk héldu upp á Litlu upplestrarhátíðina  þann 13. maí síðastliðinn og fór hún fram í hátíðarsal skólans. Á hátíðinni voru lesin ljóð, bæði einslega og með kórlestri. Nemendur hófu hátíðina með söng og voru nokkrir nemendur úr 4. bekk með tónlistaratriði. Nemendur stóðu sig frábærlega. Góð mæting foreldra á hátíðina gladdi bæði nemendur og starfsfólk skólans.