Litlu jól 21. desember

Litlu - jól 21. desember

Nemendur í 3., 4. og 9. bekk mæta klukkan 08:00 í heimastofur. Klukkan 09:00 koma þeir á sal skólans, þar sem verður dansað í kringum jólatré. Skóladegi lýkur milli klukkan 9:30 og 10:00 og Frístund opnar fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur í 5., 8. og 1. bekk mæta klukkan 09:00 í heimastofur. Klukkan 10:00 koma þeir á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur milli klukkan 10:30 og 11:00 og Frístund verður opin frá kl. 8 fyrir nemendur sem þar eru skráðir.

Nemendur í  2., 6., 7 og 10. bekk mæta klukkan 10:00 í heimastofur. Klukkan 11:00 koma þau á sal skólans, þar sem dansað verður í kringum jólatré. Skóladegi lýkur milli klukkan 11:30 og 12:00. Frístund verður opin frá kl. 8 fyrir nemendur sem þar eru skráðir. 

Þennan dag er ekki skólabíll. 

Miðvikudaginn 2. janúar er frídagur. 

Kennsla hefst á nýju ári samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 3. janúar 2019.