Í Brekkuskóla er dagur íslenskrar náttúru haldinn hátíðlegur ár hvert með verkefninu Náttúrufræðingur Brekkuskóla. Verkefnið miðar að því að auka þekkingu nemenda á íslenskri náttúru, hvort sem um er að ræða fugla, plöntur eða landslag. Að þessu sinni tóku nemendur í 3.–10. bekk þátt. Í dag 24.09.2026 var haldin athöfn á sal skólans þar sem nemendur fengu viðurkenningu fyrir góða frammistöðu og tveir nemendur útnefndir sem náttúrufræðingar skólans.
Að þessu sinni voru það Aðalgeir Hannes Árdal og Margrét Lára Rúnarsdóttir sem hlutu heiðurinn.
Með þeim á myndinni eru: Valdimar Óli Valþórsson og Eiríkur Sæmi Árnason sem fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur.
Nemendur af yngra stigi sem hlutu viðurkenningu: Tapio Valtteri Tenno Ísberg, Númi Þór Magnússon og Hekla Birkisdóttir.
Hér má sjá myndir af öllum sem fengu viðurkenningar.
Við óskum þeim öllum til hamingju!
|
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is