Nemendur komnir í páskafrí

Kæru foreldrar og forráðamenn nemenda í Brekkuskóla,

Í ljósi nýrra upplýsinga um hertar sóttvarnarreglur á landsvísu sem taka gildi á miðnætti er skólanum lokað. Nemendur í Brekkuskóla eru því komnir í páskafrí. Frístund verður einnig lokuð þennan sama tíma.

Nánari upplýsingar um skólahald eftir páska verður sent út þegar þær liggja fyrir.

 Með kveðju úr skólanum

Skólastjórnendur