Skólahald í Brekkuskóla frá og með 24. mars 2020

Í ljósi nýjustu tilmæla Almannavarna þarf að endurskoða skipulag skólastarfs frá og með þriðjudeginum 24. mars. Sóttvarnir eru forgangsmál hjá öllum í samfélaginu og eiga þær við allsstaðar og alltaf. Hólfun skóla verður enn markvissari en verið hefur og tekið verður fyrir allan ónauðsynlegan samgang á milli þeirra hvort sem um nemendur eða starfsfólk er að ræða.

Nú er okkur gert að fækka í hópum eldri nemenda og skólar munu því vinna samkvæmt því sem hér segir:

-        1.-4. bekkur verður áfram fram  í skólanum skv. sama skipulagi og verið hefur 

-        5.-7. bekk verður skipt í tvo hópa og mæta nemendur annan hvern dag samkvæmt nánara skipulagi sem ykkur berst síðar í dag

-        8.-10. bekkur verður alfarið í heima- og sjálfsnámi með aðstoð kennara. Upplýsingar um nánari útfærslu mun berast ykkur í dag eða á morgun

Eindregin tilmæli eru um að þeir foreldrar sem eru heima yfir daginn og geta haft börn sín heima geri það. Það styrkir enn frekar sóttvarnir og auðveldar starfsfólki að halda uppi reglubundnu starfi. Ef þið ákveðið það þá þarf að láta vita í tölvupósti til umsjónarkennara eða með símtali til ritara. Mikilvægt er að láta vita af þessu sem fyrst.