Skólahald í Brekkuskóla næstu daga

 

Í dag hefur allt starfsfólk Brekkuskóla komið að útfærslu varðandi starfið næstu daga og vikur.

Kennsla verður í hópum með hámark 20 nemendum og ekki verður um blöndun hópa að ræða innan skóladagsins. Í fyrramálið mæta nemendur í heimastofur hjá sínum umsjónarkennara þar sem þeir fá nánari upplýsingar um skóladaginn. Nemendur verða að hlíta öllum fyrirmælum starfsfólks og því skipulagi sem skólinn setur sér. Einnig bendum við á að skipulagið getur breyst og því verður að fylgjast vel með tölvupóstum og heimasíðu skólans. 

Ef einhverjar spurningar vakna hvetjum við ykkur til að vera í sambandi í gegnum tölvupóst eða síma.  Öll umferð um skólann verður takmörkuð eins og mögulegt er.

Öll hefðbundin kennsla í list- og verkgreinastofum og íþrótta- og sundkennsla mun falla niður. 

Einungis verður boðið upp á hádegismat fyrir nemendur í 1. – 3. bekk og ekki verður afgreiðsla á ávöxtum og mjólk.  Hafragrautur verður ekki í boði.  Því þurfa nemendur að koma með nesti að heiman og mjög gott er að hafa vatnsbrúsa í skólatöskunni.   Ekki er gert ráð fyrir að nemendur noti samlokugrill eða örbylgjuofn í skólanum.

Nemendur í 9. og 10. bekk mega koma með eigin tölvur í skólann. Við mælum með að nemendur komi með yndislestrarbækur að heiman og hafi í skólatöskunni. 

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um það hvar og hvenær hver árgangur mætir í skólann og hvenær skóladegi lýkur.  Það er nauðsynlegt að nemendur mæti á tíma sem næst þeim sem settur er í skipulagið með því erum við að lágmarka hættu á að nemendahópar mætist. 

INNGANGUR C, neðsta hæð að sunnanverðu:

1.bekkur mætir kl. 8:00 kennslu lýkur kl. 13:10 og frístund fyrir þá nemendur sem eru skráðir.

INNGANGUR að austan neðsta hæð sem snýr að skólalóð. (ATH. venjulega ekki notaður). 

2.bekkur mætir kl. 8:00 kennslu lýkur kl. 13:10 og frístund fyrir þá nemendur sem eru skráðir.

INNGANGUR B að norðanverðu:

3. bekkur mætir kl. 8:00 og fer heim kl. 13:10.

4. bekkur mætir kl. 8:10 og fer heim k. 12:20.

5. bekkur mætir kl. 8:20 og fer heim kl. 12:10. 

6. bekkur mætir kl. 8:30 og fer heim kl. 12:30.

INNGANGUR A - AÐALINNGANGUR

7. bekkur mætir kl. 8:40 og fer heim kl. 12:40.

INNGANGUR B að norðanverðu – ATH. EKKI INN UM AÐALINNGANG

8. bekkur mætir kl. 13:00 og fer heim kl. 15:00. Einnig verður fjarkennsla.

9. bekkur mætir kl. 13:10 og fer heim kl. 15:10. Einnig verður fjarkennsla.

10. bekkur mætir kl. 13:20 og fer heim kl. 15:20. Einnig verður fjarkennsla. 

Þetta er tímabundið krefjandi verkefni sem við leysum öll í sameiningu. Verum góð hvert við annað og gerum okkar allra besta.