Staðan í Brekkuskóla

Nú hefur Covid smitum fjölgað töluvert í Brekkuskóla en staðan er samt þannig að skólahald hefur hingað til lítið raskast vegna þessa. Við minnum á mikilvægi þess að nemendur séu ekki sendir í skólann ef þeir sýna einhver flensu- eða kvefeinkenni heldur sé þeim haldið heima og þeir sendir í einkennasýnatöku. Jafnframt minnum við á persónulegar sóttvarnir.