Takk fyrir matinn!

Okkur finnst öllum gott að borða og í Brekkuskóla fáum við matinn framreiddan af glöðu og góðu starfsfólki.  Mötuneytið státar af matreiðslumeistara og matartæknum sem leggja mikla áherslu á hollustu og fjölbreytt fæði fyrir nemendur og starfsfólk.

Starfsfólkið hefur mikla reynslu í að útbúa bragðgóðan og heilsusamlegan mat sem höfðar til barna og unglinga. Það er kúnst að ná því að höfða vel til svo stórs hóps en í nemendakönnunum hefur mötuneytið einmitt fengið góða umsögn undanfarin ár. 

Takk fyrir matinn!