Treyjudagurinn verður haldinn í fyrsta sinn á Íslandi föstudaginn 4. september. Þá eru einstaklingar, vinnustaðir, skólar og íþróttafélög hvött til að klæðast uppáhaldstreyjunni sinni og sýna þannig stuðning við börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra.
Við viljum vekja athygli á þessum degi þar sem margir munu klæðast treyju á morgun, föstudaginn 4. september. Það er að sjálfsögðu val og engin skylda að taka þátt með þessum hætti.
Á Treyjudeginum skiptir ekki máli hvaða liðstreyja verður fyrir valinu. Þennan dag sameinast fólk undir einum fána og sýnir börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra stuðning – við erum öll í sama liði.
|
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is