Upphátt, upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri 2023

Þann 7. mars fór fram upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri, en hún ber heitið Upphátt. Keppnin var haldin í Hömrum, menningarhúsinu Hofi og var þetta í 22. skiptið sem keppnin var haldin. Það voru nemendur í 7. bekk sem tóku þátt en áður en lokahátíðin átti sér stað höfðu skólar haldið forkeppni þar sem tveir fulltrúar voru valdir til að keppa fyrir hönd skólans. Fulltrúar Brekkuskóla voru Alexander Reid McCormick og Torfhildur Elva F Tryggvadóttir.  Þau stóðu sig bæði framúrskarandi vel.  Torfhildur Elva náði verðlaunasæti og varð í 3. sæti.   

Fyrir keppnina lögðu bæði nemendur og kennarar talsverða vinnu við undirbúning, en upphaf hennar er á degi íslenskra tungu, 16. nóvember ár hvert. Sá hluti keppninnar er kallaður ræktunarhluti þar sem allir nemendur 7. bekkjar leggja sérstaka áherslu á upplestur, vandaðan framburð, framkomu og túlkun orða. Í ár áttu sjö skólar fulltrúa í keppninni og því voru það 14 hæfileikaríkir nemendur sem lásu part úr sögunni Víti í Vestmannaeyjum eftir Gunnar Helgason og ljóð eftir Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.

Hér má sjá myndir frá keppninni