Við unnum Skólahreysti!

Brekkuskóli gerði sér lítið fyrir og fór með sigur af hólmi í Skólahreysti. Keppnin var haldin í Íþróttahöllinni og þar kepptu nemendur í grunnskólum Akureyrar sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Liðið okkar skipuðu Birnir Vagn Finnsson, Hildur Þóra Jónsdóttir, Hilma Bóel Bergsdóttir og Jósep Heiðar Jónasson, ásamt Ólafi Snæ Eyjólfssyni og Guðríði Sverrisdóttur. Þjálfari þeirra hann Jói Bjarna hefur stutt dyggilega við liðið sem hefur lagt afar hart að sér við æfingar í vetur og uppsker nú eftir því. Áhorfendur skemmtu sér konunglega í Höllinni og voru skólanum til sóma.

Já, við erum stolt af krökkunum sem tóku þátt í Skólahreysti fyrir Brekkuskóla.