04.11.2013
Gerður Ósk Hjaltadóttir kennir nemendum í 1., 6., 7. og 8.bekk sjálfstyrkingu, spuna og dans. Hér má
sjá nokkrar myndir frá kennslustundum sem fara fram á sal skólans.
Lesa meira
01.11.2013
Fréttabréf nóvember er komið út. Meðal efnis í blaðinu er pistill skólastjóra, kynning á rafrænu námi í
Brekkuskóla, kynning á Comeniusrmarkaði sem verður á árshátíð skólans, minnt á baráttudag gegn einelti, heimsókn
rithöfundar frá Svíþjóð í elstu bekkina, lestraráskorun skólasafnsins, viðburðadagatal o.fl. Fréttabréf mánaðarins má nálgast hér.
Lesa meira
31.10.2013
Snjókast er leyfilegt á körfuboltavelli við norðanverðan skólann og á svæðinu við hliðina á
römpunum.
Þegar rætt er um snjókast við nemendur er mikilvægt að koma því á framfæri að nemendur hafi val um
að taka þátt í slíkum leik á þessum svæðum.
Annars staðar á skólalóð er snjókast ekki leyfilegt.
Snjóbolta á aldrei að beina að andliti þeirra sem taka þátt í snjókasti og aldrei má kasta snjóbolta í átt að
skólahúsnæðinu.
Lesa meira
25.10.2013
Fyrstu drekameistararnir eru farnir að hljóta viðurkenningar á skólasafni
Brekkuskóla. Hér er það Stormur Karlsson sem hlaut titilinn á dögunum. Nánar um Drekameistarann
Lesa meira
24.10.2013
Kæru foreldrar
Það voru mjög spennt börn sem héldu af stað í haustfrí í dag :-)
Lesa meira
23.10.2013
Mentor hefur gefið út nýtt viðmót fyrir nemendur og foreldra sem sérstaklega er hannað með spjaldtölvur í huga en er einnig aðgengilegt
í gegnum flesta snjallsíma. Kynningarmyndband um nýja viðmótið má nálgast á vef Mentor og hér. Brekkuskóli fagnar þessum breytingum og óskar Mentor til hamingju með áfangann.
Lesa meira
22.10.2013
Takk fyrir komuna í skólann miðvikudaginn 16. október.
Við vorum mjög ánægðar með 1-5-8 fundina. Margt gagnlegt var rætt m.a. afmælisboð, sígilt umræðuefni.
Lesa meira
17.10.2013
Kim M. Kimselius er sænskur rithöfundur sem kom í heimsókn í Brekkuskóla dagana 16. og 17. október. Norræna félagið á
Íslandi, í samstarfi við Norrænu upplýsingaskrifstofuna og Norræna félagið á Akureyri, stóð fyrir heimsókninni og er
markmiðið að auka þekkingu barna og unglinga á Norðulandamálum.
Lesa meira
09.10.2013
Kennarar Brekkuskóla ræða framtíðarsýn í upplýsinga- og samskiptatækni í skólastarfi á kennarafundi. Unnið var í
hópum og voru niðurstöður skráðar í rafrænt samskiptanet todaysmeet.com
Niðurstöður verða nýttar við áframhaldandi vinnu.
Lesa meira
05.10.2013
Á skólasafni Brekkuskóla hafa nokkrir bókatitllar verið listaðir upp í þrjár mismunandi "drekagráður". Nemandi tekur
þátt með því að merkja við þær bækur sem hann hefur lesið í gráðunni sem hann velur sér. Þegar hann hefur
lokið við að lesa þær allar fær hann drekameistaratitil!
Sjá nánar um drekagráðurnar hér.
Lesa meira