100 daga hátíð

Í dag héldu nemendur í 1. bekk upp á hundraðdagahátíðina. Það er stór áfangi að hafa verið 100 daga í skóla og hafa nemendur talið dagana, lært um tugi og einingar og unnið skemmtileg verkefni tengd tölunni 100.

Nemendur fóru í skrúðgöngu um skólann og sungu lag sem tileinkað er hátíðinni. Skólinn var skreyttur og stemningin frábær. Dagurinn var fullur af gleði, samveru og góðum veitingum.

 Hér má sjá nokkrar myndir