2. sæti í Skólahreysti!

Brekkuskóli varð í 2. sæti í Skólahreysti. Keppnin var haldin í Íþróttahöllinni og þar kepptu nemendur í grunnskólum Akureyrar sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Liðið okkar skipuðu, Björgvin Snær Magnússon, Guðríður Sverrisdóttir, Hilma Bóel Bergsdóttir og Gísli Már Þórðarson ásamt Una Steini Sigurðarsyni Blöndal og Ísfold Marý Sigtryggsdóttur. Þjálfari þeirra hann Jói Bjarna hefur stutt dyggilega við liðið sem hefur lagt afar hart að sér við æfingar í vetur og uppsker nú eftir því. Áhorfendur skemmtu sér konunglega í Höllinni og voru skólanum til sóma.

Já, við erum stolt af krökkunum sem tóku þátt í Skólahreysti fyrir Brekkuskóla.