Árshátíð Brekkuskóla

Árshátíð Brekkuskóla verður haldin fimmtudaginn 9.nóvember
Þann dag verða sýningar og ýmsar uppákomur verða víðs vegar um skólann. Hin vinsæla ævintýraveröld með hlutaveltu, tívolíþrautum, draugahúsi, spákonu, andlitsmálun, bíó o.fl. verður á sínum stað. Að venju er það 6. bekkur sem sér um ævintýraveröldina og er hún liður í fjáröflun fyrir ferð að Reykjum á næsta skólaári. 
Kaffihlaðborð 10. bekkjar verður á sínum stað í matsal frá kl. 12:00 - 18:15. 

Á hádegissýningunum verður sjoppan opin þar sem hægt verður að fá keyptar pylsur og drykki.

Nemendur mæta:

1.-3. bekkur kl: 08:00-13:10 og Frístund tekur við hjá þeim sem þar eru skráðir.
4. og 5. bekkur mætir kl: 08:00
6. bekkur mætir milli kl: 08:00-10:00
7.- 8. bekkur mætir kl: 10:00
9.-10. bekkur mætir kl: 11:00

 

Aðgangseyrir á árshátíðina sjálfa er enginn.
Kaffihlaðborð: 8.-10. bekkingar og fullorðnir 1000 kr.
börn í 1. -7. bekk 500 kr. (frítt fyrir nemendur á leikskólaaldri)
Pylsur í hádegi:  300  kr.
Drykkir eru á verðbilinu 100 - 250 kr.
Ævintýraveröld: Hver miði kostar 100 kr. 
Rétt er að taka það fram að ekki er hægt að taka við greiðslum með kortum í skólanum.

Sýningartímar:

1.bekkur 12:30 á sal

2. bekkur 12:00 á sal

3.bekkur 11:30 á sal

4. bekkur 13:00 á sal

5.bekkur 13:45 á sal

7.-8.bekkur 14:30 og 17:00 á sal

9.-10.bekkur 15:30 og 18:00 á sal

 

Hlökkum til að sjá ykkur :)