Árshátíðarskipulag

Hér er heildarskipulag fyrir árshátíð Brekkuskóla 10. nóvember 2016.Sýningar og ýmsar uppákomur verða víðs vegar um skólann. Hin vinsæla “ævintýraveröld” með hlutaveltu, tívolíþrautum, draugahúsi, spákonu, andlitsmálun, bíó o.fl. verður á sínum stað. Að venju er það 6. bekkur sem sér um ævintýraveröldina sem safnar fyrir ferð að Reykjum á næsta skólaári.
Kaffihlaðborð 10. bekkja verður í matsal frá kl. 12:00 - 18:15.  Á hádegissýningunum verður sjoppa 10. bekkinga opin þar sem hægt verður að fá keyptar pylsur og drykk.
Aðgangseyrir á árshátíðina sjálfa er enginn.
Helstu verð í fjáröflun 6. og 10. bekkinga:
Kaffihlaðborð: 8.-10. bekkingar og fullorðnir 1000 kr. og börn í 1. -7. bekk 500 kr. (frítt fyrir nemendur á leikskólaaldri)
Pylsur í hádegi kosta 300  kr.
Drykkir eru á verðbilinu 100 - 250 kr.
Ævintýraveröld: Hver miði kostar 100 kr. 

Nemendur mæta í skólann á árshátíðardag:
1.-3. bekkur kl: 08:00-13:10 og Frístund tekur við hjá þeim sem þar eru skráðir.
4. og 5. bekkur mætir kl: 08:00
6. bekkur mætir milli kl: 08:00-10:00
7.- 8. bekkur mætir kl: 10:00
9.-10. bekkur mætir kl: 11:00
Rétt er að taka það fram að ekki er hægt að taka við greiðslum með kortum í skólanum.

Sjáumst í skólanum á hátíðardegi!