Brekkuskólaleikarnir – vinabekkir, gleði og góð samvera
Það var líf og fjör á Brekkuskólaleikum í dag. Markmið leikanna var meðal annars að efla tengsl nemenda þvert á aldur og því fengu vinabekkir að njóta dagsins saman. Vinabekkjapörin voru: 1. og 6. bekkur, 2. og 7. bekkur, 3. og 8. bekkur, 4. og 9. bekkur og 5. og 10. bekkur.
Nemendur fóru á milli fimm fjölbreyttra stöðva þar sem reyndi á samvinnu, hreyfingu, sköpun og gleði. Í Lystigarðinum var ratleikur, í Íþróttahöllinni var hreyfispil, á Hamarkotstúni var farið í leikinn „Ein króna“, dansað var á skólalóðinni og á milli húsanna fengu nemendur að skapa krítarmósaík.
Vinabekkirnir ferðuðust saman á milli stöðva yfir morguninn og fengu þannig fjölmörg tækifæri til að leika, hreyfa sig og vinna saman. Umsjónarkennarar og stuðningsfulltrúar fylgdu árgöngunum og aðstoðuðu á stöðvunum.
Við þökkum öllum nemendum og starfsfólki fyrir skemmtilegan dag og góða þátttöku í Brekkuskólaleikunum😊
|
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is