100 daga hátíð í 1. bekk

Í dag fagna nemendur í 1. bekk degi 100 í skólanum:-)

Nemendur og starfsfólk hélt daginn hátíðlegan með því að fara í skrúðgöngu um skólann og gæða sér á góðgæti sem nemendur söfnuðu í skreytta bréfpoka. Unnið var á fjölbreyttan hátt með tugi og auðvitað 100 og að sjálfsögðu var búið að skreyta skólann í tilefni dagsins.  Við óskum nemendum í 1. bekk innilega til hamingju með daginn og erum óendanlega ánægð með hópinn.  Sjá má nokkrar myndir frá deginum hér á heimasíðunni.