Upphátt - upplestrarkeppni grunnskóla á Akureyri

Upphátt, upplestrarkeppnin í 7. bekkjum grunnskólanna á Akureyri fór fram í Menntaskólanum á Akureyri  23.03.2022. Aðallesarar Brekkuskóla voru þau Guðmundur Jóvin Sigvaldason og Rósalind Gullý Þorgeirsdóttir. Varamaður var Þorsteinn Pétursson. Það er skemmst frá því að segja að Guðmundur Jóvin var valinn af dómnefnd í 2. sæti keppninnar. Keppendur stóðu sig allir með stakri prýði og var unun að hlusta á svo góðan upplestur. Það er ljóst að markmiðum upplestrarkeppninnar hefur verið náð en þau eru m.a. að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum, vandaðan upplestur og framburð, og fá alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Starfsfólk Brekkuskóla óskar Guðmundi og 7. bekk öllum til hamingju með árangurinn!