Nemendur Brekkuskóla skara fram úr í keppnum

Nemendur við Brekkuskóla á Akureyri hafa á dögunum náð frábærum árangri í verkefnum utan skólans. Liðið Rotturnar  tryggði sér 3. sæti í keppninni Greindu betur 2026 með verkefni sitt um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Þær fengu viðurkenningu og 30.000 kr. gjafabréf.

 

Auk þess náði annað lið skólans, Grabba, einnig góðum árangri og hafnaði í 4.–5. sæti keppninnar, sem undirstrikar breidd og styrk nemenda í verkefnavinnu.

 

Í umsögn dómnefndar kemur fram að verkefni Rottnanna sé bæði áhugavert og mikilvægt, þar sem ekki aðeins sé skoðuð þróun losunar yfir tíma heldur einnig greindir þættir sem hafa áhrif á breytingar, svo sem Covid-19 faraldurinn og þróun í samgöngum. Verkefnið þótti metnaðarfullt og sýna fjölþætta tölfræðigreiningu. Verðlaunaafhending fór fram miðvikudaginn 8. apríl.

 

Einnig vann Stella í 5. bekk teiknisamkeppni MS síðastliðinn vetur og hlaut 40.000 króna vinning sem rann í bekkjarsjóð. Í tilefni þess hefur verið ákveðið að nemendur í 5. bekk fari í bíó miðvikudaginn 15. apríl, þar sem þeim verður boðið upp á popp og drykk.