Nemendur við Brekkuskóla á Akureyri hafa á dögunum náð frábærum árangri í verkefnum utan skólans. Liðið Rotturnar tryggði sér 3. sæti í keppninni Greindu betur 2026 með verkefni sitt um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Þær fengu viðurkenningu og 30.000 kr. gjafabréf.
Auk þess náði annað lið skólans, Grabba, einnig góðum árangri og hafnaði í 4.–5. sæti keppninnar, sem undirstrikar breidd og styrk nemenda í verkefnavinnu.
Í umsögn dómnefndar kemur fram að verkefni Rottnanna sé bæði áhugavert og mikilvægt, þar sem ekki aðeins sé skoðuð þróun losunar yfir tíma heldur einnig greindir þættir sem hafa áhrif á breytingar, svo sem Covid-19 faraldurinn og þróun í samgöngum. Verkefnið þótti metnaðarfullt og sýna fjölþætta tölfræðigreiningu. Verðlaunaafhending fór fram miðvikudaginn 8. apríl.
Einnig vann Stella í 5. bekk teiknisamkeppni MS síðastliðinn vetur og hlaut 40.000 króna vinning sem rann í bekkjarsjóð. Í tilefni þess hefur verið ákveðið að nemendur í 5. bekk fari í bíó miðvikudaginn 15. apríl, þar sem þeim verður boðið upp á popp og drykk.
|
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is