Skákmót í Brekkuskóla

Þann 5. mars sl. fór fram Brekkuskólamótið í skák. 38 keppendur úr 4-10. bekk voru skráðir til leiks og tefldu fimm umferðir. Umhugsunartíminn var fimm mínútur á keppanda í hverri umferð, auk þriggja sekúndna viðbótarlíma fyrir hvern leik í skákinni.

Eins og vænta mátti var hart barist á þessu móti enda margir slyngir skákmenn í skólanum. Þegar upp var staðið var þó aðeins einn keppandi sem vann allar sínar skákir og er hann því Brekkuskólameistari í skák árið 2026.  Auk sjálfs meistaratitilsins voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur í hverjum árgangi. Verðlaunahafar voru þessir:

Brekkuskólameistari: Nökkvi Már Valsson 5v.

                         
Unglingastig:                 Jökull Máni Viðarsson (10. bk) 4v.
                                            Jóel Arnar Jónasson (8 bk.)  4 v.


7. bekkur                         Jónatan Darri Gunnarsson  4 v.


6. bekkur                          Ásta Marín Jónsdóttir  3 v.
                                          Kári Sæberg Magnason 3 v.
                                          Sigurbjörn Ari Pálsson  3 v.

5. bekkur                          Bergur Snær Sverrisson  4 v.
                                              Viktor Valur Décioson 4 v.


4. bekkur                          Fannar Breki Svansson  3,5 v.