Þann 5. mars sl. fór fram Brekkuskólamótið í skák. 38 keppendur úr 4-10. bekk voru skráðir til leiks og tefldu fimm umferðir. Umhugsunartíminn var fimm mínútur á keppanda í hverri umferð, auk þriggja sekúndna viðbótarlíma fyrir hvern leik í skákinni.
Eins og vænta mátti var hart barist á þessu móti enda margir slyngir skákmenn í skólanum. Þegar upp var staðið var þó aðeins einn keppandi sem vann allar sínar skákir og er hann því Brekkuskólameistari í skák árið 2026. Auk sjálfs meistaratitilsins voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur í hverjum árgangi. Verðlaunahafar voru þessir:
Brekkuskólameistari: Nökkvi Már Valsson 5v.
Unglingastig: Jökull Máni Viðarsson (10. bk) 4v.
Jóel Arnar Jónasson (8 bk.) 4 v.
7. bekkur Jónatan Darri Gunnarsson 4 v.
6. bekkur Ásta Marín Jónsdóttir 3 v.
Kári Sæberg Magnason 3 v.
Sigurbjörn Ari Pálsson 3 v.
5. bekkur Bergur Snær Sverrisson 4 v.
Viktor Valur Décioson 4 v.
4. bekkur Fannar Breki Svansson 3,5 v.
|
v/Skólastíg | 600 Akureyri kt. 410169-6229 Sími: 414-7900 Frístund sími 414-7979 Netfang: brekkuskoli@akureyri.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um veikindi eða óskir um leyfi nemenda: 414 7900 / brekkuskoli@akureyri.is