Skólabyrjun 4. janúar 2021

Skóli hefst mánudaginn 4. janúar kl. 8.  Kennsla verður samkvæmt stundaskrám í öllum árgöngum. 

Nemendur í 1. - 10. bekk eru undanþegnir 2 metra nálægðarmörkum sem og grímuskyldu. Blöndun nemenda milli hópa er heimil. Heimilt er að víkja frá fjöldatakmörkunum í sameiginlegum rýmum skóla s.s. við innganga, á göngum og í mötuneyti.  Þetta þýðir að allir nemendur geta nýtt sér mötuneytið og hefðbundnar stundaskrár taka gildi að undanskildu utanskóla vali hjá 8. - 10. bekk. 

Áfram þarf að huga að sóttvörnum og þrifum og skulu foreldrar og aðstandendur ekki koma inn í skólann nema nauðsyn beri til og þurfa þá að nota andlitsgrímur.