Skólahreysti í Höllinni á miðvikudag – Brekkuskóli mætir í svörtu

Keppnin í Skólahreysti fer fram í Höllinni á miðvikudagskvöld og verður spennan án efa mikil. Brekkuskóli mætir til leiks í svörtum lit og hvetur stuðningsfólk sitt til að fjölmenna og sýna kraftmikinn stuðning.

Þeir sem hyggjast mæta í Höllina til að hvetja keppendur eru beðnir um að vera komnir í sæti fyrir kl. 19:30. Fyrir þá sem ekki komast á staðinn verður bein útsending frá keppninni á RÚV og hefst hún kl. 20:05.

Áfram Brekkó!